All good things come to an end

Já svo ég tali nú aðeins meira um veðrið, þá virðist sem hið endalausa sólskin sem sleikt hefur höfuðborgarbúa sé farið á vit feðra sinna. Núna ku rigning vera á dagskrá næstu daga...hinsvegar sá ég mér til mikillar gleði að aftur á að koma gott veður nk. mánudag og þriðjudag og þá á ég við 17° hita og sól!!!!!!!!!!! Hvað er að gerast með ,,klakann,,? Ekki kvarta ég! Svo varð úr að ég makaði strákinn minn í sólarvörn því ég sá ekki fyrir endann á blíðunni og taldi heldur ósanngjarnt fyrir hann að kúldrast inni í kerru innilokaður og í skugga. Þannig að litli kútur hefur fengið á sig slatta af sól og þar með heilan haug af D-vítamíni. Mér skilst allavega að við mannfólkið fáum það vítamín úr gula kvikindinu :)

Já að öðrum málum - fékk ekki draumadjobbið sem ég sótti um. Frekar súrt...en það hlýtur eitthvað að reka á fjörur mínar þegar haustar. Núna er bara lægð í atvinnumálunum enda fólk búið að redda sumarstarfsfólkinu og ekki farið að huga að umbreytingum vetrarins. Ég er róleg því mig langar að vera heima með guttann minn út ágúst, verð alveg að viðurkenna það. Hinsvegar er buddan mín ekkert endilega sammála þessu þar sem húsið okkar byggist ekki af sjálfu sér og hvað þá að reikningarnir séu sjálfborgandi :) Hvað það væri nú ljúft annars.......

HÖMMMMM....hef nú ekki mikið að segja held ég...ja jú fer í 30 ára afmæli næsta laugardag og líka laugardaginn þar á eftir....allir að komast á þennan aldur í mínum vinahóp. Ég er róleg þar sem allt árið þarf næstum að líða áður en ég verð að gamalli kellingu :) hahahhahahhahah.

Farið varlega í umferðinni þar sem allir eru á faraldsfæti næstu helgar...og lifið heil.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir

Nei, nei það verður fínt veður um helgina....ég er alveg sannfærð um það  Leitt að heyra að þú fékkst ekki starfið en það er þá bara vegna þess að það er eitthvað annað og betra sem bíður.

Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir, 5.7.2007 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband