Atvinnuleit

Jiminn góður hvað mér finnst leiðinlegt að leita mér að vinnu, held satt að segja að það sé með því leiðinlegra sem til er í lífinu. Ástæðan? Jú það að fylla út þessa endalausu lista á heimasíðum ráðningarþjónusta um hvað maður hefur lært osfrv. Vildi óska þess að það væri bara hægt að senda ferilskránna sína með tölvupósti eða í gegnum forrit hjá þeim og punktur búið! Ekki fylla út allt draslið og svo senda ferilskrá líka - fáránlegt!

Vissulega er þetta nú hagræðing fyrir sjálfar ráðningarstofurnar því þær fá þarna upplýsingar strax á tölvutæku formi og gerir það þeim auðveldara fyrir að vinsa úr umsækjendum fyrir tiltekin störf. Æji þetta er bara að fara í taugarnar á mér þessa dagana hahahhah...etv er ég að nota þetta blessaða blogg sem svona röfl dæmi - hvur veit. Þeir sem hafa þá ekki áhuga á að lesa væl, vol, kvart og kvein geta þá bara farið yfir á bloggið hennar Ellýar Ármanns eða annarra sem eru með eitthvað meira krassandi í boði :)

Litli gaurinn minn hefur verið veikur undanfarið, ekkert alvarlegt bara kvefpest - samt nóg til að við foreldrarnir séum komin hálfa leið inn á Klepp, ótrúlegt hvað svona frávik gera lífið erfitt. En hann er allur að lagast og ég líka þ.e. geðheilsan hehhehehehehehehhehehe.

Í dag er svo mömmuklúbbur - alltaf stuð þar á bæ.....eftir það tekur við ungbarnasund - æðislega gaman, ja nema í dag verð ég ein með gaurinn og það er ekki alveg jafn gaman þar sem kallinn minn er ómetanlegur stuðningur á þeim stundum....svo í kvöld verður þreytt mamma sem skríður inn um hurðina heima hjá sér...en jafnframt endurnærð eftir mömmuklúbbinn og sundleikfimina :) Já hey man líka eftir öðru....ekki allt búið enn.....mamman þarf að fara á fund í kvöld líka!!!! OK á semsé eftir að sofna um leið og ég leggst á koddann seint í kvöld!

Hætt að kvarta í bili - góðar stundir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir

Já, ég hef oft pælt í þessu með atvinnuumsóknirnir. Til hvers að fylla allt út og svo senda ferilskrá...fáránlegt. Vitanlega ættu þeir sem senda ferilskrár með að sleppa því að fylla hitt út

Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir, 19.6.2007 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband