Brjóstagjöf. Er hún sjálfsögð?

Hvað er málið með að rakka niður konur sem geta ekki haft börnin sín á brjósti? Þrátt fyrir að þær hafi gert allt sem í valdi þeirra stendur til að reyna þetta þá samt er fundin ástæða til að hnýta í þær.

Ástæðan fyrir þessum skrifum mínum er sú að ég hef mjög oft lesið umræður á Barnalandi um þessi mál. Konur eru miður sín því brjóstagjöfin gengur ekki og oft á tíðum þróast þessi vanlíðan út í þunglyndi því vanmáttartilfinningin er svo mikil.

Sjálf hef ég lent í þessu því ég mjólkaði ekki nóg..og að ég held bara nánast ekki neitt þegar ég átti strákinn minn. Sem frumbyrja þá fór ég vissulega bara eftir því sem allir í umhverfi mínu sögðu mér að gera, fyrst voru það ljósmæðurnar á LSH en síðar ungbarnaeftirlitið. Eftir miklar sálarkvalir og þrotlausa vinnu í 3 mánuði gaf ég þetta upp á bátinn og barnið mitt fékk eingöngu þurrmjólk. Einhvern vegin leið mér alltaf þannig að ég væri ,,verri,, mamma fyrir að hafa barnið mitt á pela, fáránlegt ég veit, en samt þetta er það sem maður Á AÐ GERA. Ef það gengur ekki upp þá getur þú tekið ,,verri,, kost og gefið barninu þurrmjólk. Þetta gerir það að verkum að konum fer að líða þannig að þær séu ekki að veita barninu sínu, sem því er fyrir bestu og það orsakar vanlíðan móður. Það er allavega mín skoðun.

Með þessum pistli mínum vildi ég bara vekja heilbrigðisstarfsfólk til umhugsunar um það hvað það segir við nýbakaðar mæður sem eiga erfitt með brjóstagjöf. Því aðgát skal höfð í nærveru nýbakaðra mæðra sem eiga erfitt með brjóstagjöfina :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dagný Kristinsdóttir

Mikið er ég sammála þér þarna

Dagný Kristinsdóttir, 16.4.2008 kl. 22:09

2 identicon

Algjörlega sammála þér!  Læknir sagði reyndar við mig þegar pjakkurinn var nokkurra vikna að ef brjóstagjöfin gengi ekki upp þá ætti maður bara að nota þá góðu kosti sem væru til í staðinn..  karlmaður sjáðu til, held svei mér þá að konurnar séu fanatískari!  Meira helv.. ruglið og ég tjái mig um þetta við þær hvenær sem færi gefst  
Gaman að sjá hreyfingu hérna, vona að þið hafið það gott

Þórunn Birna (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 21:54

3 identicon

Þetta er alveg rétt hjá þér Sigrún. Það er of mikið einblínt á brjóstagjöf á Íslandi. Það gleymist að áróður fyrir brjóstagjöf á Íslandi er ekki eins mikilvægur og í mörgum löndum, í fyrsta lagi reyna langflestar mæður brjóstagjöf þannig að ef konur kjósa að gefa barninu sínu þurrmjólk þá er það mjög sjaldan hentistefna heldur er brjóstagjöf oftast fullreynd. Í öðru lagi þá eiga börn á Íslandi kost á góðum valkostum í stað brjóstamjólkur, þ.e. þurrmjólk á meðan í þróunarlöndunum er mikilvægt að koma börnum á brjóst ef mögulegt er, þar sem þurrmjólk og hreint vatn til að blanda hana er gjarnan af skornum skammti.

Nánast aldrei er svo talað um kosti pelagjafar fram yfir brjóstagjöf, sem er t.d. að faðirin hefur jafnt tækifæri og móðirin að fæða barnið og móðirin hefur aukið frelsi sem hún hefur ekki ef hún er að gefa brjóst.

Ég er mjög hlynnt brjóstagjöf ef hún gengur upp, en common, þurrmjólk er EKKI eitur og í öðru lagi, hvern fjandann kemur fólki við hvort Gunna í næsta húsi gefur brjóst eða pela.... barnið hennar á eflaust eftir að dafna vel, hvort sem er.

Gulla (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband